Páskaegg – Mjólkursúkkulaðiegg

Viðskiptavinur: Freyja —> Umbúðir

Líparít hefur til fjölda ára hannað umbúðir fyrir öll páskaeggin frá Freyju. Þau hjá Freyju eru dugleg að koma með nýjungar til viðbótar við klassísku páskaeggin sín til að gleðja landann. Þetta árið komu á markaðinn páskaegg með hreinu mjólkursúkkulaði. Við hönnuðum umbúðir í ljúfum og glaðlegum páskalitum sem tengja við vorið og sólina, og teiknuðum krúttlegar páskakanínufjölskyldu til að merkja eggin.