Freyju Lakkrís

Viðskiptavinur: Freyja —> Umbúðir

Líparít hannaði umbúðir á gamlu góðu Freyju lakkrísinn. Framhliðin er á ensku, þar sem pokinn var hugsaður til sölu á ferðamannastöðum, og þess vegna er fánaborði og skírskotun í fánaröndina/fánalitina í bakgrunnsgrafík. Tíglamynstrið í bakgrunni er einnig þekkt stef í vörum frá Freyju og sást fyrst í Hrís-pokunum og hefur oft verið notað í umbúðir og efni tengdu hefðinni.

Líparít sá einnig um myndvinnslu á lakkrísbitunum.