Freyju mjólkursúkkulaði

Viðskiptavinur: Freyja ehf. —> Umbúðir / Merki

Freyja sælgætisgerð setti á markað hágæða mjólkursúkkulaðiplötur með hinum sívinsælu Djúpum og Sterkum Djúpum árið 2021.

Við fengum það verkefni að hanna umbúðir á plöturnar með það í huga að síðar myndu bætast við fleiri bragðtegundir.  Útgangspunktur í hönnuninni var að sýna fram á gæði og arfleifð og það er óhætt að segja að þessi nýjung hafi slegið í gegn. Í dag eru Freyju mjólkursúkkulaði einnig fáanlegt með Bombum, Banana Bombum, Lakkrís Bombum, Freyju karamellu og hreint mjólkursúkkulaði.