Freyja sælgætisgerð setti á markað hágæða mjólkursúkkulaðiplötur með hinum sívinsælu Djúpum og Sterkum Djúpum árið 2021.
Við fengum það verkefni að hanna umbúðir á plöturnar með það í huga að síðar myndu bætast við fleiri bragðtegundir. Útgangspunktur í hönnuninni var að sýna fram á gæði og arfleifð og það er óhætt að segja að þessi nýjung hafi slegið í gegn. Í dag eru Freyju mjólkursúkkulaði einnig fáanlegt með Bombum, Banana Bombum, Lakkrís Bombum, Freyju karamellu og hreint mjólkursúkkulaði.
© 2024 Líparít. Öll réttindi áskillin.
Líparít hönnunarstofa
Lækjartorg 5
101 Reykjavík